Sport

Powell á enn möguleika á gullpottinum

Powell kom fyrstur í mark í Brussel í kvöld
Powell kom fyrstur í mark í Brussel í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Jamaíkumaðurinn Asafa Powell á enn möguleika á að tryggja sér gullpottinn eftirsótta í frjálsum íþróttum eftir að hann sigraði í 100 metra hlaupi á gullmótinu í Brussel í kvöld. Powell kom í mark á tímanum 9,99 sekúndum og náði fyrsta sæti þrátt fyrir að klúðra startinu gjörsamlega. Powell sagði að síðustu 90 metrarnir hefðu líklega verið þeir bestu hjá honum á ferlinum eftir hörmulegt startið. Powell er heimsmethafi í greininni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×