Innlent

Leynilegur baráttufundur starfsmanna IGS

Hátt á annað hundrað starfsmenn IGS, dótturfyrirtækis Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð, hittust laust fyrir klukkan átta í gærkvöld á leynilegum baráttufundi í húsi Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur. Starfsmenn IGS hafa einusinni gert alvöru úr hótunum sínum að leggja niður störf og hafa nú endurtekið þær hótanir batni kjör þeirra ekki. Að sögn fundargesta sem NFS ræddi við ríkir mikil samstaða meðal starfsmanna. Enginn vildi þó tjá sig efnislega um hvað rætt var á fundinum eða hvort gripið yrði til aðgerða á næstunni. Það yrði að koma í ljós.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×