Samstaða um forgang vegaframkvæmda á Vestfjörðum 7. júlí 2006 16:57 Frá Vestfjörðum MYND/Róbert
Skyndilega virðist orðin samstaða um að vegaframkvæmdir á Vestfjörðum og Norðausturlandi eigi að hafa forgang. Þetta segir Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra og fyrrverandi þingmaður Vestfjarðakjördæmis. Formaður Frjálslynda flokksins segist ekki sætta sig við að skorið sé af lagfæringum á aðalflutningaleiðum Vestfjarða. Ríkisstjórnin tilkynnti í síðustu viku að gripið yrði til víðtækra aðgerða til að draga úr þenslu. Í því felst meðal annars að fresta tímabundið útboðum og upphafi nýrra vegaframkvæmda, þar á meðal á Norðausturlandi og á Vestfjörðum. Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra og fyrrverandi þingmaður Vestjarðakjördæmis, var gestur í hádegisviðtali NFS í dag. Þar sagði hann að það hefði verið ósanngjarnt af sinni hálfu ef hann hefði barið í borð og mótmælt ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Þó hafi það vissulega verið erfitt að samþykkja hana. En Einar segir ýmislegt jákvættt hafa komið fram í umræðunni sem spunnist hefur vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar. Þar á meðal að skyndilega virðist orðin samstaða um að vegaframkvæmdir á Vestfjörðum og Norðausturlandi eigi að hafa forgang. „Það er af sem áður var," sagði Einar. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sem jafnframt er fulltrúi flokksins í samgöngunefnd og þingmaður Vestfjarðarkjördæmis, er síður en svo ánægður með þróun mála. Hann segist ekki sjá, frekar en aðrir Vestfirðingar, hvers vegna Vestfirðingar séu látnir líða fyrir þensluástandið þar sem engin þensluaukandi verkefni séu í gangi í kjördæminu. Guojón segist hreinlega ekki sætta sig við að skorið sé af lagfæringum á aðalflutningaleiðum Vestfjarða.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Innlent Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Innlent „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Innlent Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Erlent Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Innlent Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Innlent Fagna löngu tímabærri breytingu Innlent Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Innlent Fleiri fréttir Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Vilhjálmur Hjálmarsson kjörinn varaformaður ÖBÍ „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Fagna löngu tímabærri breytingu Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Biskup Íslands predikar í Vík á 90 ára afmæli kirkjunnar Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Landsfundur ræðir stjórnarslit og nýjum reglum um blóðgjöf fagnað Tveir stórir skjálftar í Bárðarbunguöskjunni Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Tveir reyndust í skotti bíls Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Loksins mega hommar gefa blóð Sjá meira