Ronaldo hleður inn metunum 23. júní 2006 01:14 Ronaldo er einn leikreyndasti knattspyrnumaðurinn í sögu HM þrátt fyrir tiltölulega ungan aldur
Brasilíski framherjinn Ronaldo er ekki aðeins orðinn markahæsti leikmaður í sögu HM ásamt Þjóðverjanum Gerd Muller, heldur hefur hann spilað fleiri leiki í röð á HM en nokkur annar leikmaður sem tekur þátt í keppninni nú. Ronaldo var í byrjunarliði Brassa í 17. skipti í röð í leiknum við Japan í kvöld. Sá leikmaður sem á metið yfir flesta leiki í röð í byrjunarliði í sögu keppninnar er hinsvegar ítalski varnarjaxlinn Paolo Maldini, sem spilaði 23 leiki í röð á HM frá 1990-2002 og var í byrjunarliði Ítala í þeim öllum. Diego Maradona kemur þar skammt á eftir með 21 leik í röð í byrjunarliði Argentínu á árunum 1982-1994. Ronaldo er sem fyrr segir með langflesta leiki í röð af þeim sem eru við keppni í dag, en næstu menn á eftir honum eru þeir Fabien Barthez, markvörður Frakka og Englendingurinn Michael Owen, sem spilað hafa 12 leiki í röð í byrjunarliði. Owen bætir þó tölfræði sína ekki frekar vegna meiðslanna sem hann hlaut í leiknum við Svía á dögunum.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Liverpool leiði kapphlaupið um Guehi Fótbolti Meiðslin muni að öllum líkindum teygja sig inn í landsleikjapásuna Fótbolti Georgíumenn í góðum málum í íslenska riðlinum Handbolti Ótrúleg endurkoma skaut Börsungum á toppinn Fótbolti Atalanta mistókst að hirða toppsætið af Inter Fótbolti „Við áttum skilið að vinna í dag“ Fótbolti Sjötíu ára titlaþurrð á enda Enski boltinn United nálgast efri hlutann Enski boltinn Gengur út ef hann fær sömu meðferð og Glazerarnir Fótbolti Fulham nær Evrópu eftir sigur á Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool leiði kapphlaupið um Guehi Meiðslin muni að öllum líkindum teygja sig inn í landsleikjapásuna Atalanta mistókst að hirða toppsætið af Inter Fulham nær Evrópu eftir sigur á Tottenham Georgíumenn í góðum málum í íslenska riðlinum Ótrúleg endurkoma skaut Börsungum á toppinn „Við áttum skilið að vinna í dag“ Martin stigahæstur í stórsigri United nálgast efri hlutann Hinrik farinn til Noregs frá ÍA Strákarnir hans Dags völtuðu yfir Tékka Mikilvægur sigur Eyjakvenna Stólarnir sóttu sinn fyrsta sigur Albert gulltryggði sigurinn gegn Juventus Færeyingar unnu í Hollandi og eru á toppnum í riðlinum Sjötíu ára titlaþurrð á enda ÍR-konur upp fyrir Selfoss eftir sigur á Selfossi Brynjólfur í hetjuhlutverkinu í hollenska boltanum Merino aftur hetja Arsenal Karólína Lea lagði upp mark í stórsigri Cecilía fékk á sig tvö sjálfsmörk Aldís Ásta spilaði upp liðsfélagana í enn einum sigrinum Fjórtán ára stelpa kom inn á í bandarísku atvinnumannadeildinni Íslendingaliðið tók dýrmæt stig af Napoli í toppbaráttunni Jón Axel næststigahæstur og Burgos jók forskotið á toppnum Aðeins einu sinni komist fyrr inn á EM í handbolta Vantar fleiri klukkustundir í sólarhringinn Dallas Mavericks gæti þurft að gefa NBA leiki Sjáðu hetjudáðir Stefáns Teits í enska boltanum í gær Sæmdu hvor aðra Gullmerki KKÍ Sjá meira