Sport

Bonds kominn upp fyrir Babe Ruth

Bonds sló á létta strengi með félögum sínum á dögunum og klæddi sig upp sem einn dómaranna í Idol-keppninni
Bonds sló á létta strengi með félögum sínum á dögunum og klæddi sig upp sem einn dómaranna í Idol-keppninni NordicPhotos/GettyImages

Hinn umdeildi Barry Bonds náði í gær sínu 715. heimahlaupi í bandaríska hafnarboltanum og komst þar með upp fyrir goðsögnina Babe Ruth í annað sæti á lista þeirra sem hafa náð flestum heimahlaupum á ferlinum. Hann vantar þó enn 40 stykki til að ná Hank Aaron sem er í efsta sætinu.

Bonds náð afrekinu á heimavelli sínum og fékk magnað lófatak frá áhorfendum í San Francisco, en þeir halda enn tryggð við þennan hataðasta íþróttamann Bandaríkjanna. Bonds hefur sjö sinnum verið valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar á ferlinum, en harðar ásakanir um steraneyslu hafa sett dökkan blett á feril hans að undanförnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×