Sport

Senderos ekki með gegn Villareal

Senderos er meiddur á hné.
Senderos er meiddur á hné. Getty

Svissneski miðvörðurinn Philippe Senderos verður líklega ekki með í seinni undanúrslitaleik Arsenal og Villareal í Meistaradeild Evrópu. Senderos fór meiddur af velli í jafnteflisleik Arsenal og Tottenham í gær. Líklega verður Sol Campbell kallaður til að fylla skarð Senderos. Arsenal leiðir einvígið 1-0 eftir sigur á heimavelli en eiga erfitt verkefni fyrir höndum.

Arsenal hafa verið í miklum vandræðum með meiðsli varnarmanna undanfarið en auk Senderos eru þeir Ashley Cole, Lauren, Pascal Cygan og Gael Clichy meiddir og þá hefur Sol Campbell verið fjarri góðu gamni stóran hluta tímabilsins. Ungu mennirnir sem þurft hafa að fylla í þessi skörð hafa þó staðið sig vel og hafa þeir Senderos og Kolo Toure náð einstaklega vel saman, sérstaklega í Meistaradeildinni. Meiðsli Svisslendingsins unga eru því vonbrigði fyrir Arsenal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×