Innlent

Spá áframhaldandi hækkun Úrvalsvísitölunnar

MYND/Stefán

Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands heldur áfram að hækka á árinu 2006 og mun hækka um 20% á árinu að mati greiningadeildar Íslandsbanka.

Í afkomuspá greiningadeildarinnar segir að útlitið sé bjart fyrir árið og búast megi við góðri ávöxtun á hlutabréfamarkaðnum á árinu en þó verði ávöxtun ekki eins mikil og síðustu þrjú árin. Góður gangur í efnahagslífinu, jákvæðar horfur í rekstri fyrirtækja og útrás og framþróun þeirra bera þess öll merki að hækkun hlutabréfa haldi áfram á árinu. Í afkomuspánni er einnig gert ráð fyrir áframhaldandi háu gengi krónunnar fram eftir árinu eða þar til þenslan nær hámarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×