Enski boltinn

Vill helst spila í sókninni

Hermann skallar hér boltann frá Kevin Davies, leikmanni Bolton.
Hermann skallar hér boltann frá Kevin Davies, leikmanni Bolton. NordicPhotos/GettyImages

Hermann Hreiðarsson segir að það sé engin ástæða til að ætla annað en að Charlton komi sér aftur á beinu brautina en liðið situr sem stendur í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

„Hver einasti leikur er nú upp á líf og dauða fyrir okkur og við þurfum að byrja strax um helgina," sagði Hermann en Charlton mætir Íslendingaliðinu Reading á útivelli á laugardag.

Meðal annars segir hann í viðtali við staðarblaðið Bexley Times að honum sé sama hvar hann spili á vellinum, svo lengi sem hann skili sínu fyrir liðið.

„Ég myndi auðvitað helst vilja vera fremsti maður í sókn en ég virðist vera sá eini sem er á þeirri skoðun."- esá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×