Erlent

Var að ljúka grein umpyntingar í Tsjetsjeníu

Mótmæli í Moskvu. Morðið á Önnu Politskovskaja varð aðalefni mótmælafundar í Moskvu í gær, þar sem upphaflega átti að mótmæla því að meira en hundrað Georgíumenn voru reknir úr landi í vikunni.
Mótmæli í Moskvu. Morðið á Önnu Politskovskaja varð aðalefni mótmælafundar í Moskvu í gær, þar sem upphaflega átti að mótmæla því að meira en hundrað Georgíumenn voru reknir úr landi í vikunni.

Stjórnvöld í Rússlandi hétu því í gær að hafa uppi á morðingja fréttakonunnar Önnu Politskovskaja, sem myrt var á laugardag. Starfsfélagar hennar á blaðinu Novaya Gazeta, þar sem hún starfaði, treysta þó varlega á þau loforð og ætla sjálfir að hefja rannsókn á morði hennar. Þeir eru þess fullvissir að hún hafi verið myrt vegna skrifa sinna, en hún hefur gagnrýnt harðlega stríðsrekstur Vladimírs Pútín forseta í Tsjetsjeníu.

Þeir segja að hún hafi ætlað að birta í blaðinu í dag grein um pyntingar og mannrán í Tsje­tsjeníu, byggða á viðtölum við sjónarvotta og með myndum af fórnarlömbum pyntinga.

,,Okkur barst aldrei greinin, en hún hafði sannanir fyrir þessu og hafði undir höndum ljósmyndir, sagði Vitalí Jerúshenskí, aðstoðarritstjóri blaðsins, í viðtali við rússneska útvarpsstöð.

Anna Politskovskaja fannst látin á laugardaginn í lyftu í húsinu þar sem hún bjó í Moskvu. Hún var særð tveimur skotsárum. Skammbyssa og fjórar byssukúlur fundust hjá líkinu.

Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin hafa krafist þess af rússneskum stjórnvöldum að ítarleg rannsókn verði gerð á morðinu.

Oleg Orlov hjá mannréttindasamtökunum Memorial segist viss um að Politskovskaja hafi verið myrt að undirlagi þeirra sem bera ábyrgð á mannréttindabrotum í Tsjetsjeníu.

Politskovskaja var einn af sárafáum blaðamönnum í Rússlandi sem fjölluðu um mannréttindabrot í Tsjetsjeníu. Hún hefur gagnrýnt harðlega Ramzan Kadyrov, sem er forsætisráðherra í Tsjetsjeníu með stuðningi rússneskra stjórnvalda. Hún hefur einnig reitt aðra ráðamenn til reiði, þar á meðal rússneska herinn með umfjöllun sinni um hann. Á hinn bóginn hefur hún unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir skrif sín.

Fleiri þekktir blaðamenn, sem höfðu gagnrýnt stjórnvöld í Rússlandi, hafa verið myrtir síðan Vladimír Pútín forseti komst til valda árið 2000. Þekktastur þeirra var Paul Klebnikov, ritstjóri rússnesku útgáfunnar af viðskiptatímaritinu Forbes, en hann var myrtur í júlí árið 2004. Tveir Tsjetsjenar voru á sínum tíma ákærðir fyrir það morð, en þeir voru látnir lausir fyrr á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×