Erlent

Nýtur trausts þingmeirihluta

Ferenc Gyurcsany baðst afsökunar á þingi í gær.
Ferenc Gyurcsany baðst afsökunar á þingi í gær.

Þjóðþingið í Ungverjalandi hefur samþykkt traustsyfirlýsingu á ríkisstjórn Ferencs Gyurscany forsætisráðherra, sem jafnframt bað þingið afsökunar á að hafa ekki tekist af fullri alvöru á við efnahagserfiðleika landsins fyrir þingkosningarnar í apríl síðastliðnum.

Gyurscany hefur sætt harðri gagnrýni í landinu eftir að upptökur birtust af ræðu, þar sem hann sagðist hafa logið stanslaust um efnahagsástandið í aðdraganda kosninganna.

Hann lagði sjálfur fram tillögu um traustsyfirlýsinguna, sem samþykkt var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×