Erlent

Skáru upp í þyngdarleysi

Þyngdarlaus uppskurður Vísindamenn fylgdust áhugasamir með læknunum, sem voru bundnir niður.
Þyngdarlaus uppskurður Vísindamenn fylgdust áhugasamir með læknunum, sem voru bundnir niður. MYND/AP

Franskir læknar hafa undirbúið sig og læknavísindin undir geimferðir framtíðarinnar með því að gera litla aðgerð á manni í þyngdarleysi. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem nokkur maður hefur verið skorinn upp við þær kringumstæður.

Aðgerðin fólst í að fjarlægja litla blöðru af framhandlegg 46 ára karlmanns og fór „nákvæmlega eins og við áttum von á,“ sagði Dominique Martin yfirlæknir við blaðamenn að aðgerð lokinni. Hann bætti við að allt benti til þess að hægt verði að nota vélmenni eða fjarstýrðan tölvubúnað til að skera fólk upp í geimförum.

Skurðstofan var sett upp í Airbus 300 Zero-G flugvél sem tók 25 djúpar dýfur til að framleiða nær þyngdarleysi innan vélarinnar. Hver dýfa varaði í 22 sekúndur og unnu skurðlæknarnir fimm eingöngu meðan á þeim varði. Flugið sjálft tók um þrjá tíma, en aðgerðin eingöngu ellefu mínútur – eða svipaðan tíma og hún hefði tekið á jörðu niðri.

Læknarnir og sjúklingurinn voru bundnir niður og seglar notaðir til að koma í veg fyrir að skurðhnífar flytu um loftið. Eftir að gulleit blaðran, sem var illkynja, var skorin af, flaut hún í burt frá sjúklingnum. Læknarnir höfðu þó fest band í hana svo hún komst ekki langt.

Undirbúningur aðgerðarinnar tók þrjú ár, en hún er hluti af víðtækari rannsókn á uppskurðum við þessar aðstæður. Áður höfðu læknarnir framkvæmt mun nákvæmari skurðaðgerð á hala rottu, og sagði Martin þessa aðgerð hafa verið afar einfalda í samanburði.

Sjúklingurinn var valinn vegna áhuga hans á teygjustökki, sem gerir hann vanan breytingum í þyngdaraflinu, að sögn talsmanns sjúkrahússins sem Martin vinnur hjá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×