Erlent

Stjórnarflokkar biðu afhroð

Ferenc 
Gyurcsany
Ferenc Gyurcsany

Ferenc Gyurcsany, forsætisráðherra Ungverjalands, fer fram á það að þing landsins greiði á föstudaginn atkvæði um traustsyfirlýsingu á stjórnina, sem beið verulegt afhroð í sveitarstjórnarkosningum nú um helgina.

Fjölmenn mótmæli hafa verið haldin reglulega gegn stjórninni síðustu vikur, eða frá því forsætisráðherrann upplýsti þjóðina um að hann hefði logið að henni stanslaust fyrir þingkosningarnar í vor. „Ég heyri gagnrýnisraddirnar, og ég átta mig á ábyrgð stjórnarinnar,“ sagði Gyurcsany á mánudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×