Innlent

Allir vel undir mörkunum

Engir þeirra sem verða starfs síns vegna fyrir geislun hér á landi eru nálægt heilsuspillandi mörkum. Meirihluti þeirra starfar annað hvort innan heilbrigðisþjónustunnar eða í tengslum við hana.

Þetta sýna mælingar Geislavarna ríkisins sem árlega aflar upplýsinga um geislaálag starfsfólks er vinnur við jónandi geislun á ýmsum stofnunum og fyrirtækjum. Um er að ræða fólk er starfar á rannsóknastofum, við röntgengreiningar og almennar geislalækningar. Allir þeir sem mældir voru á síðasta ári voru langt undir leyfilegu geislaálagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×