Innlent

Lenti óvart á handtökulista

Aron Pálmi Ágústsson, sem hefur afplánað betrunarvist í Texas seinustu níu árin, var næstum handtekinn á þriðjudag eftir að hafa lent á handtökulista vegna mistaka í tölvukerfi lögreglu.

Aron sendi stuðningsnefnd sinni á Íslandi SMS boð um að lögreglan væri komin að heimili hans. Skilorðsfulltrúinn fullvissaði hann síðan um að um mistök væri að ræða og kom í kjölfarið í veg fyrir handtökuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×