Sport

Bryant ætlar á Ólympíuleikana

Kobe Bryant ætlar með landsliði Bancaríkjanna á Ólympíuleikana í Kína árið 2008
Kobe Bryant ætlar með landsliði Bancaríkjanna á Ólympíuleikana í Kína árið 2008 NordicPhotos/GettyImages

Hinn skotglaði Kobe Bryant hjá LA Lakers hefur tilkynnt að hann ætli að gefa kost á sér í landslið Bandaríkjanna í körfubolta fyrir Ólympíuleikana í Peking árið 2008. Þetta kemur fram í LA Times um helgina, en Bryant á að hafa fundað með Jerry Colangelo, framkvæmdastjóra landsliðsins, og tekið þessa ákvörðun í framhaldinu.

Bryant hefur leikið vel með LA Lakers í vetur og skorar að meðaltali rúm 32 stig í leik, en hann komst í fréttirnar fyrir um viku síðan þegar hann skoraði 62 stig í aðeins þremur leikhlutum gegn Dallas.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×