Sport

Souness vill að Shearer verði eitt ár enn

Alan Shearer
Alan Shearer NordicPhotos/GettyImages

Graeme Souness, stjóri Newcastle, vill að fyrirliðinn Alan Shearer hætti við að hætta eftir þetta tímabil og verði eitt ár í viðbót með liðinu. Shearer hugleiddi að hætta eftir síðasta tímabil, en fékkst til að halda áfram og nú eru sömu vangavelturnar komnar upp á borð hjá hinum 36 ára gamla sóknarmanns.

"Ef Alan heldur áfram að spila eins og hann hefur verið að spila undanfarið, sé ég ekki að hann ætti að hætta í sumar. Hann verður auðvitað að gera það upp við sig sjálfur, en hann nýtur þess að vera atvinnuknattspyrnumaður og ef menn gera það - af hverju ættu þeir þá að hætta?" sagði Souness.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×