Sport

Mér verður ekki sagt að þegja

Jose Mourinho ætlar að halda áfram að viðra skoðanir sínar á Englandi, þó þær hafi stundum komið honum í vandræði
Jose Mourinho ætlar að halda áfram að viðra skoðanir sínar á Englandi, þó þær hafi stundum komið honum í vandræði NordicPhotos/GettyImages

Jose Mourinho hefur lýst því yfir að honum verði ekki sagt að þegja og segist muni halda áfram að tjá skoðanir sínar. Þetta segir hann á meðan hann bíður eftir úrskurði aganefndar enska knattspyrnusambandsins vegna ummæla hans um leikmann Wigan, sem hann kallaði svindlara í leik Wigan og Chelsea á dögunum.

"Allir hafa rétt á sínum skoðunum og ég tel mig hafa rétt á því að viðra mínar skoðanir á Englandi. Það er mikilvægt að hafa skoðanir á hlutunum og að vera ekki hræddur um að láta þær í ljós þó það mæti gagnrýni," sagði Portúgalinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×