Sport

Tilboði West Ham hafnað

Andy Johnson, hér til hægri, var ekki jafn heppinn og fyrrum félagi hans Wayne Routledge, sem var keyptur til Tottenham í úrvalsdeildinni í sumar
Andy Johnson, hér til hægri, var ekki jafn heppinn og fyrrum félagi hans Wayne Routledge, sem var keyptur til Tottenham í úrvalsdeildinni í sumar NordicPhotos/GettyImages

Simon Jordan, stjórnarformaður Crystal Palace, hefur hafnað 5,5 milljón punda tilboði West Ham í framherjann Andy Johnson og segir að fyrrum landsliðsmaðurinn ungi sé einfaldlega ekki til sölu.

Johnson var í enska landsliðinu í fyrra og sló í gegn í úrvalsdeildinni með Crystal Palace, en liðið féll sem kunnugt er niður í fyrstu deildina í vor og þar hefur Johnson þurft að dúsa síðan.

"Ég neitaði 9 milljón punda tilboði í hann í sumar - af hverju ætti ég þá að stökkva til og taka helmingi lægra tilboði í hann í dag," sagði Jordan hneykslaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×