Sport

Tottenham kaupir Ron Vlaar frá AZ Alkmaar

Martin Jol þekkir vel til í heimalandi sínu og hefur nú samkvæmt stefnu Tottenham, nælt í ungan og efnilegan varnarmann til liðsins fyrir lítinn pening
Martin Jol þekkir vel til í heimalandi sínu og hefur nú samkvæmt stefnu Tottenham, nælt í ungan og efnilegan varnarmann til liðsins fyrir lítinn pening NordicPhotos/GettyImages
Úrvalsdeildarlið Tottenham Hotspurs hefur gengið frá kaupum á hollenska varnarmanninum Ron Vlaar, félaga Grétars Rafns Steinssonar hjá AZ Alkmaar. Vlaar þessi hefur aðeins spilað 11 leiki með AZ það sem af er í vetur, en á að baki tvo landsleiki þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur að aldri.  Kaupverðið er 1,7 milljónir punda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×