Sport

Get ekki fyrirgefið Di Canio

Paolo di Canio hefur ekki aflað sér vinsælda með fasistakveðjum sínum undanfarið
Paolo di Canio hefur ekki aflað sér vinsælda með fasistakveðjum sínum undanfarið NordicPhotos/GettyImages

Markvörðurinn Shaka Hislop, fyrrum félagi Paolo di Canio hjá West Ham, segist ekki geta fyrirgefið honum fasistakveðjurnar sem hann hefur stundað í leikjum með liði sínu Lazio á Ítalíu undanfarið, en framkoma Ítalans hefur farið mjög fyrir brjóstið á forráðamönnum deildarinnar.

"Paolo lét aldrei neitt svona í ljós þegar ég spilaði með honum hjá West Ham á sínum tíma og ég er mjög vonsvikinn að sjá hann haga sér svona. Honum kom mjög vel saman við konu mína og börn og mér býður við að sjá hann heilsa með þessari kveðju. Hann var maður sem ég leit á sem vin, þannig að ég er mjög sár og vonsvikinn," sagði Hislop.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×