Sport

Reynir að gera góð kaup í janúar

Rafa Benitez mun áreiðanlega fara út að versla í janúar
Rafa Benitez mun áreiðanlega fara út að versla í janúar NordicPhotos/GettyImages

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, er talinn muni hafa úr þónokkrum fjármunum að spila í janúar þegar opnar fyrir félagaskiptagluggann á ný. Benitez segir þó ekki gefið að góðir leikmenn verði á lausu.

"Ég hef alltaf líkt þessu við borð sem stendur á þremur fótum. Maður verður að útvega sér fjórðu löppina undir borðið svo það sé stöðugt, en þá þarf maður líka að velja vel. Sumir vilja versla ódýrt og aðrir dýrt, en ég þarf að finna leikmenn sem falla inn í liðið og þeir eru vandfundnir," sagði Benitez, sem er talinn líklegastur til að kaupa miðvörð í janúar og hafa þeir Nemanja Vidic hjá Spartak Moskvu og Daniel Agger hjá Brondby oft verið nefndir til sögunnar í þeim efnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×