Sport

Dregið í töfluraðir í dag

Í dag kl. 13 verður dregið í töfluröð fyrir landsdeildir 2006 í fótbolta en þá skýrist hvaða félög mætast í einstökum umferðum viðkomandi móts. Drátturinn er fyrir Landsbankadeild karla, Landsbankadeild kvenna, 1. deild karla og 2. deild karla og fer hann fram á Hótel Nordica. Niðurstöður dráttarins ættu að liggja fyrir um miðjan daginn í dag.

Fyrr í morgun fór fram formannafundur allra aðildarfélaga KSÍ á Nordica.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×