Sport

Chelsea tapaði fyrir Real Betis

NordicPhotos/GettyImages

Chelsea tapaði sínum fyrsta leik í Meistaradeildinni í ár í kvöld, þegar liðið lá á Spáni fyrir Real Betis 1-0. Chelsea-liðið var mun sterkara í leiknum, en leikmenn liðsins fóru illa með færin og geta sjálfum sér um kennt hvernig fór.

Liverpool vann auðveldan sigur á Anderlecht 3-0. Mörk liðsins skoruðu þeir Morientes, Garcia og Cissé. PSV vann góðan sigur á AC Milan 1-0, Lyon vann Olympiakos 4-1, Schalke vann Fenerbahce 2-0, Real Madrid lagði Rosenborg 2-0, Inter lagði Porto 2-1 og Artmedia og Rangers skildu jöfn 2-2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×