Sport

Íhugar að kæra Jose Mourinho

NordicPhotos/GettyImages

Arsene Wenger var ekki hrifinn af ummælum Jose Mourinho um helgina, þar sem hann kallaði Wenger "gluggagægir" og segist vera að íhuga að kæra Portúgalann fyrir meiðyrði.

"Ég veit ekki hvað það var sem fékk Mourinho til að segja þessa hluti um mig, ég var bara í viðtali þar sem ég var spurður út í Chelsea og ég gaf bara hreinskilin svör. Það sem Mourinho sagði var ærumeiðandi og algjörlega yfir strikið og ég hef ekki útilokað að leggja fram kæru á hendur honum," sagði Wenger móðgaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×