Sport

Þrumuræða Keane ritskoðuð af sjónvarpinu

NordicPhotos/GettyImages

Roy Keane vandaði félögum sínum í liði Manchester United ekki kveðjurnar í þætti á sjónvarpsstöð félagsins í dag, ef marka má viðbrögð dagskrárstjóra stöðvarinnar, því dagskrárliðurinn þar sem fyrirliðinn meiddi var beðinn að segja sína meiningu á tapinu gegn Boro um helgina var klipptur út.

Ekki hefur enn komið fram hvað það var sem fyrirliðinn lét gossa í upptökunni, en hann er þekktur fyrir að láta vel í sér heyra ef honum mislíka hlutirnir. Uppákoman var hin vandræðalegasta og þurftu þeir sem stjórna útsendingum stöðvarinnar að hafa hraðar hendur og koma öðru efni í loftið í staðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×