Sport

Tekinn fullur á bílnum um helgina

NordicPhotos/GettyImages

Vandræðagemlingurinn El Hadji Diouf hjá Bolton er enn kominn í fréttirnar fyrir agabrot og nú fyrir ölvunarakstur. Diouf var stöðvaður af lögreglu snemma á sunnudagsmorguninn og var látinn blása, þar sem í ljós kom að hann var undir áhrifum áfengis.

Diouf á að mæta fyrir rétt í byrjun desember þar sem eldra mál gegn honum verður tekið fyrir, en það var vegna ákæru um að hafa hrækt á áhorfanda á leik gegn Middlesbrough.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×