Sport

Skapsmunir hans eru jákvæðir

NordicPhotos/GettyImages

Knattspyrnugoðsögnin Diego Maradona sagði í viðtali við breska blaðið Sun að hinir umdeildu skapsmunir Wayne Rooney séu ekki neikvæðir, heldur þvert á móti af hinu góða. Margir hafa spáð því að Rooney eigi eftir að verða skotmark á HM í Þýskalandi næsta sumar vegna skapsmuna sinna, en Maradona hefur engar áhyggjur af því.

"Skap hans er jákvætt, ekki neikvætt. Það er skap hans sem á eftir að hjálpa honum að ná árangri á knattspyrnuvellinum. Þetta er harður leikur og maður nær ekki árangri með því að haga sér eins og dýrlingur á vellinum. Menn verða að berjast fyrir sínu, því ekkert er gefið í fótbolta," sagði Maradona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×