Innlent

Sveitarstjórnarmenn ekki á eitt sáttir

Gert er ráð fyrir að lögregluembættum fækki úr 26 í fimmtán.
Gert er ráð fyrir að lögregluembættum fækki úr 26 í fimmtán.

Hugmyndir að breyttri skipan lögregluembætta víða um land fara mis vel í sveitarstjórnarmenn. Sveitarstjórinn í Reykhólahreppi undrast að samgöngubætur í sýslunni skuli ekki hafa verið höfð til hliðsjónar. Bæjarstjórinn á Hornafirði segir að við fyrstu sýn virðist tillögurnar ganga þvert á hugmyndir um nærþjónustu og ákvarðantöku íbúa í héraði.

Einar Örn Thorlacius, sveitarstjóri í Reykhólahreppi, hefur áður óskað eftir því að löggæsla í hreppnum verði tryggð. Lögreglumaður hefur ekki verið í hreppnum en löggæslu verið sinnt frá Patreksfirði. Samkvæmt nýjum tillögum nefndar um nýskipan lögreglumála er ljóst að ekki er gert ráð fyrir stöðu lögreglumanns á Reykhólum. Þess í stað munu Reykhólar verða hluti af lögregluembættinu í Borgarnesi og þar með mun Barðastrandasýsla verða klofinn í tvennt milli lögregluembættisins þar og á Ísafirði. Einar segir það sæta furðu að Reykhólahreppur skuli nú tilheyra lögregluembætti í Borgarnesi. Undarlegt sé að í skýrslu nefndarinnar sé ekki að finna orð um samgöngumál. Þannig sé ekki tekið tillit til fyrirhugaðra vegaframkvæmda á milli Hólmavíkur og Reykhóla, sem komi til með að leysa af sumarveg sem nær aldrei er fær á vetrum. Því hefði verið mun gáfulegra að lögrelga með aðsetur á Hólmavík hefði umsjón með löggæslu í hreppnum. Hann segir sveitarstjórn ætla aðræða málið á fundi með þingmönnum Norðvesturkjördæmis. Albert Eymundsson, bæjarstjóri á Hornafirði, segir fyrirætlanir um að yfirstjórn lögreglu í bænum flytjist til Eskifjarðar í fyrstu koma sér spánskt fyrir sjónir. Hann segir fyrirætlanirnar þannig ganga þvert á hugmyndir um nærþjónustu og ákvarðantöku íbúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×