Innlent

Borgin fær hálfan milljarð

Norðlingaholt séð úr lofti.
Norðlingaholt séð úr lofti. MYND/Vilhelm

Reykjavíkurborg fær allt að 488 milljónir króna fyrir byggingarétt á lóðum undir atvinnuhúsnæði í Norðlingaholti. Tilboð í lóðirnar voru opnuð fyrir helgi.

Stærsta lóðin er 5.670 fermetrar og hljóðaði hæsta boð í hana upp á 103 milljónir króna, það er þriðjungi yfir lágmarksverði sem var sett á lóðina. Minnsta lóðin er 150 fermetrar og hljóðaði hæsta boð upp á átta milljónir króna sem er fjórfalt hærra en lágmarksverðið sem borgin setti á lóðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×