Innlent

Kerfi hafi ekki sagt sitt síðasta

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir í grein á heimasíðu sinni í gær að réttarkerfið hafi ekki sagt sitt síðasta í kærumálinu gegn Baugi og að lögheimildir séu til þess að ákæruvaldið taki mið af því sem fram hafi komið hjá Hæstarétti við frekari ákvarðanir um framhald málsins. Björn tjáir sig ekki frekar um niðurstöðu Hæstaréttar nema að segja að hún hafi verið stórfrétt gærdagsins. Jón H.B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, hefur þó sagt að of snemmt sé að segja til um hvort ný ákæra verði gefin út í stað þeirra ákæruliða sem Hæstiréttur hefur vísað frá. Fyrst verði að fara gaumgæfilega yfir dóminn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×