Innlent

Ráðist á tvo menn með hnífi

Tveir menn voru fluttir á slysadeild í nótt, eftir að ráðist var á þá með stórum hnífi eða sveðju í Garðabæ. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er annar þeirra alvarlega slasaður, höfuðkúpubrotinn, með stórt sár á höfði og sár á höndum.  Árásin var gerð fyrir utan heimahús í Garbæ, þar sem gleðskapur hafði verið í gangi. Fjórir 18 ára piltar voru handteknir á staðnum grunaðir um árásina. Lögreglan í Hafnarfirði mun þekkja ágætlega til þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×