Innlent

Bifhjólaslys í Ártúnsbrekku

Ökumaður og farþegi á bifhjóli slösuðust í umferðarslysi í Ártúnsbrekkunni nú á fjórða tímanum. Bæði voru flutt á slysavarðsstofu. Umferð um Ártúnsbrekkuna tafðist til vesturs á meðan verið var að gera að sárum fólksins og koma því í sjúkrabíl og koma bifhjólinu af veginum. Að sögn vakthafandi læknis er fólkið ekki í lífshættu. Það þarf þó að gangast undir aðgerð í kvöld vegna beinbrota. Ekki liggja upplýsingar um tildrög slyssins hjá lögreglu sem rannsakar málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×