Innlent

Rauf skilorð með skutlinu

Tuttugu og eins árs gamall maður var nýlega dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að aka félaga sínum af vettvangi innbrots í Reykjavík í mars í fyrra og fara með þýfið á heimili sitt í Breiðholti. Þá var honum refsað fyrir að hafa verið með,17. júní síðastliðinn, 1,42 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni í fórum sínu þegar lögregla kannaði ferðir hans í bíl á Suðurgötu í Reykjavík. Félaginn sem braust inn var dæmdur fyrr á árinu. Maðurinn hefur tvisvar áður hlotið skilorðsbundna dóma og rauf með fyrra broti sínu skilorð og því dæmdur í fangelsi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×