Erlent

Varar við auknu ofbeldi í Írak

George Bush Bandaríkjaforseti varaði í dag við auknu ofbeldi í Írak á næstunni, eða þar til kosið yrði um nýja stjórnarskrá landsins. Sex fórust og þrjátíu særðust þegar kona sprengdi sig í loft upp við skráningarstöð írakska hersins við landamæri Sýrlands í dag. Al-Qaida hefur lýst ábyrgð á árásinni en þetta mun vera í fyrsta sinn í Írak sem kona gerir sjálfsmorðsárás. Á þessu svæði hafa undanfarið staðið yfir blóðugir bardagar hersveita og andspyrnumanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×