Erlent

Íbúar Tal Afar snúa heim

Íbúar Tal Afar í Írak snúa nú heim til sín hver af öðrum eftir að hafa flúið vegna skotbardaga undanfarnar tvær vikur. Bandarískar og írakskar hersveitir hófu áhlaup á vígi uppreisnarmanna í borginni fyrir tíu dögum og síðan þá hefur byssugelt heyrst frá morgni til kvölds og skriðdrekar keyrt um í miðbænum. Írakski herinn segist nú hafa ráðið niðurlögum allra uppreisnarmanna í borginni og náð stjórn á ástandinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×