Innlent

Ölvaður á bíl með þýfi

Sautján ára sjáanlega ölvaður ökumaður var handtekinn í Borgarnesi í gærmorgun eftir smávægilegt umferðaróhapp. Hann keyrði á umferðarskilti. Héraðslögreglumaður á leið í vinnu kom í veg fyrir að ungi maðurinn styngi af. Í bílnum voru ýmsir stolnir hlutir, þar á meðal tveir bunkar af Fréttablaðinu, umferðarskilti og keilur. Maðurinn var tekinn í blóðsýni og skýrslutöku. Lögreglun grunar að fleiri hafi verið í bílnum en ökumaðurinn vildi ekki gefa upp hvort svo hafi verið eða hverjir það voru.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×