Innlent

Hvetja til að hafna sameiningu

Samtök sem ætla að hvetja landsmenn til að hafna sameiningu sveitarfélaga í kosningum í næsta mánuði eru að verða til í Svarfaðardal. Bitur reynsla heimamanna af sameiningu norðanlands veldur því að forsvarsmenn sjá ástæðu til að vara aðra landsmenn við. Undirbúningsfundur að stofnun félagsins verður haldinn á morgun í félagsheimilinu Rimum í Svarfaðardal. Hvatamenn að stofnun félagsins eru íbúar í Svarfaðardal sem sætta sig ekki við ákvörðun Dalvíkurbyggðar um að leggja af skólahald í Húsabakkaskóla. Eftir að Svarfaðardalshreppur var sameinaður Dalvík lentu sjónarmið íbúanna í dalnum í minnihluta en meirihlutinn ákvað að börnum í dalnum skyldi í staðinn ekið í skólann á Dalvík. Íbúar Svarfaðardals hafa án árangurs barist fyrir því að fá þeirri ákvörðun hrundið en síðan snúið baráttu sinni upp í það að fá sitt gamla sveitarfélag til baka með því að slíta sameiningunni við Dalvík, sömuleiðis án árangurs. Þorkell Jóhannsson, einn af hvatamönnum að stofnun félagsins sem ætlar að vara landsmenn við sameiningu sveitarfélaga, segir að enn sé verið að „spinna“ félagið. Það muni svo beita sér gegn því sameiningarferli sem nú sé í gangi og lýkur með kosningum 8. október næstkomandi. Svarfdælingar ætla að segja væntanlegum kjósendum frá biturri reynslu sinni með von um að það verði víti til varnaðar og að sveitarfélög búi svo um hnútana, ef af sameingu verður, að þau hafi mögulega útgönguleið aftur. Og þessu tengt. Bæjarstjórn Garðs hefur samþykkt ályktun þar sem íbúar eru varaðir við því að fallast á sameiningu við önnur sveitarfélög á Suðurnesjum. Segir að með sameiningu í stóra einingu sé mun líklegra að erfiðara verði fyrir íbúa Garðs að hafa áhrif á ákvörðunartöku og telur bæjarstjórnin að hagsmunir íbúa Garðs verði best tryggðir með því að Garður verði áfram rekinn sem sjálfstætt sveitarfélag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×