Sport

Mourinho segir riðilinn erfiðan

Jose Mourinho viðurkenndi fúslega að riðillinn sem Chelsea leikur í í Meistaradeild Evrópu sé mjög erfiður og bendir á að liðið muni þurfa á sínu besta til að komast áfram. "Mörg af liðunum í efri styrkleikaflokkunum fengu lítil lið með sér í riðlunum, en þegar litið er á liðinu sem eru með okkur má sjá að það eru engin smálið. Anderlecht er sögufrægt félag og þó Real Betis sé þarna í fyrsta sinn, eru þeir með hörkulið og því verður þetta ekki auðvelt verkefni," sagði Mourinho.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×