Innlent

Úr öndunarvél eftir hnífsstungu

Piltur um tvítug sem var stunginn tvívegis í bakið í Hafnarstræti í miðborginni í nótt er enn á gjörgæsludeild en þó ekki lengur í öndunarvél. Við stungurnar féll annað lungað í honum saman og var hann um tíma í lífshættu en það varð honum til lífs hversu fljótt honum var komið undir læknishendur. Árásarmaðurinn var handtekinn stuttu eftir tilræðið en hann fannst með aðstoð eftirlitsmyndavéla og hafði skömmu áður en hann var handtekinn reynt að losa sig við hnífinn. Hann mun enn vera í yfirheyrslu og verið er að skoða hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir honum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×