Innlent

Tvö fíkniefnamál á Akureyri

Tvö fíkniefnamál komu upp á Akureyri í nótt. Piltur um tvítugt var stöðvaður við venjubundið eftirlit á bíl sínum og fannst lítilræði af kannabisefnum í bílnum. Piltinum var sleppt eftir yfirheyrslur. Þá var ekið á ljósastaur á Akureyri í nótt og fannst lítilræði af kannabisefnum á ökumanninum. Enginn slasaðist við áreksturinn. Tveir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um ölvun við akstur. Annar ökumannanna reyndist vera 16 ára og hafði hann tekið bíl foreldra sinna ófrjálsri hendi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×