Innlent

Kveikti í herbergi með rakettu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað tvisvar út í nótt vegna bruna. Í fyrra skiptið kom upp eldur í svefnherbergi í Vesturbænum þar sem maður var að fikta með skiparakettu. Svo óheppilega vildi til að hún sprakk í svefnherberginu og við það kviknaði í rúmfötum. Töluverðar skemmdir urðu á íbúðinni. Þá var tilkynnt um eld í íbúð í Þingholtunum um klukkan þrjú í nótt. Þar hafði maður sett bjúgu í pott sem hann hugðist borða eftir erfiði næturinnar. Hann sofnaði hins vegar yfir eldamennskunni. Bjúgun brunnu og við það myndaðist mikill reykur. Að sögn varðstjóra lögreglunnar var maðurinn viðskotaillur þegar slökkvilið og lögregla mætti á staðinn en þó þurfti ekki að handtaka manninn. Töluverðar reykskemmdir urðu á íbúðinni og í stigaganginum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×