Innlent

Teknir í Kópavogslaug í nótt

Lögreglan í Kópavogi stöðvaði sundleikfimi tveggja rúmlega tvítugra pilta í Kópavogslauginni í nótt, en þeir höfðu brotist þar inn og farið í laugina. Sundferðin hjá piltunum verður þó nokkuð kostnaðarsöm því kalla þurfti sundlaugarvörðinn út sem þurfti að hreinsa til eftir piltana. Annars var nóttin mjög róleg hjá lögregluembættum um allt land. Þó voru þrír ökumenn í Reykjavík teknir í nótt grunaðir um ölvun við akstur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×