Sport

Leika gegn Kongó á HM í dag

Keppni á heimsmeistaramóti landsliða leikmanna 21 árs og yngri í handknattleik hófst í Ungverjalandi í gær. Íslendingar sátu yfir í fyrstu umferð en mæta Kongómönnum í dag. Kongómenn steinlágu fyrir Þjóðverjum í gær með 38 marka mun, 48-10. Auk Þjóðverja og Kongómanna eru Chilemenn og Spánverjar með Íslendingum í riðli. Þessar þjóðir mættust í gær og Spánverjar sigruðu með 42 mörkum gegn 24. Íslendingar mæta Chilemönnum á morgun, Spánverjum á föstudag og Þjóðverjum á laugardag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×