Innlent

Leita ferðamanns á Vestfjörðum

Allar björgunarsveitir við Ísafjarðardjúp eru í viðbragðsstöðu og þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna 23 ára Þjóðverja sem varð viðskila við gönguhóp sinn á Hornströndum í gær. Talið er að hópurinn hafi verið á leið frá Hælavík yfir í Hornvík þegar maðurinn týndist, en mikil þoka var á svæðinu. Er óttast um afdrif mannsins þar sem ferðaveður er slæmt, kalt og mikil rigning. Veðrið gerir leitina einnig erfiða, en til að mynda er ekki hægt að leita á sjó vegna þess.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×