Danir flæktir í síldardeilu 12. ágúst 2005 00:01
Danir hafa flækst inn í deilu Íslendinga og Norðmanna um kvótaskiptingu úr norsk-íslenska síldarstofninum. Hans Christian Schmidt ráðherra sjávarúrvegs-, matvæla- og landbúnaðarmála Danmerkur er nú staddur hér í vinnuferð til þess að leita málamiðlunar í deilunum. Danir mega veiða talsvert af kvótanum, en vegna ágreinings um skiptingu hans hafa Norðmenn nú bannað dönskum skipum að landa síld úr stofninum í Noregi og jafnframt hafa norskir útvegsmenn tekið sig saman um að landa ekki norsk- íslenskri síld í Danmörku. Hvort tveggja er mikið hagsmunamál fyrir Dani. Norðmenn sem nú þegar hafa langstærsta hlut kvótans vilja auka hann umtalsvert, einkum á kostnað Íslendinga, og fyrr á árinu studdu Danir kröfur Norðmanna í von um að leysa ágreining sinn við Norðmenn og þá væntanlega á kostnað íslendinga. Ráðherrann hefur átt tvo fundi með Árna Mathiesen sjáratútvegsráðherra um málið nú í vikunni en engin afgerandi lausn er í sjónmáli. Þeir hafa auk þessa rætt um kolmunnakvóta, Svalbarðamálið og ólöglegar og óskráðar fiskveiðar á alþjóðlegum hafsvæðum. Þótt þetta heiti vinnuferð ráðherrans hingað til lands ætlar hann að gefa sér tíma til að skreppa til Siglufjarðar, Hofsóss og Sauðárkróks, skoða nokkra háskóla og hitta Guðna Ágústsson, enda er hann landbúnaðarráðhera líka.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Innlent Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Erlent Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið Innlent „Hann hverfur ofan í jörðina“ Innlent Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Innlent Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Innlent Fleiri fréttir Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Sjá meira