Innlent

Kona enn þungt haldin eftir slys

Þjóðvegurinn við Hallormsstaðarskóg var lokaður alveg fram undir miðnætti vegna umferðarslyssins sem varð þar síðdegis í gær þar sem tveir menn fórust. Kona, sem ók fólksbílnum sem þeir voru í, liggur enn þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítalans. Hún gekkst undir aðgerð í nótt og aftur nú laust fyrir hádegi. Ökumaður flutningabílsins, sem rakst á fólksbílinn, slasaðist ekki alvarlega. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir enda hefur ekki verið hægt að ræða við konuna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×