Innlent

Tveir létust í umferðarslysi

Tveir biðu bana og einn slasaðist alvarlega í árekstri inn undir Hallormsstað síðdegis í dag. Það voru fólksbíll og flutningabíll sem rákust saman seinni partinn í dag með þeim afleiðingum að tveir farþegar í fólksbílnum biðu bana. Ökumaðurinn slasaðist alvarlega og var fluttur með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík. Ekki er ljóst um tildrög slyssins enn þá en lögreglan er við rannsókn á slysstaðnum. Veginum var lokað vegna rannsóknarinnar og sagði lögreglan í samtali við fréttatofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar að tæpast yrði búið að opna hann þegar fréttatími Stöðvar 2 hæfist, klukkan hálfsjö. Það má því búast við einhverjum umferðartöfum fram eftir kvöldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×