Innlent

Reyndi að lokka drengi til sín

Karlmaður er sagður hafa reynt að ginna þrjá drengi sem voru á leið í bíó í Smáralind fyrir helgi inn í bíl til sín. Enn sem komið er hefur engin kæra borist lögreglu en öryggisverðir í Smáralind tilkynntu um atvikið. Maðurinn mun hafa hringt í símasjálfsala sem drengirnir svöruðu og lofað þeim sælgæti kæmu þeir út í bíl til sín. "Þetta mál er komið inn á borð til okkar og við erum að kanna hvort þetta eigi við rök að styðjast," segir Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Hafnarfirði. Að sögn lögreglu hafa fleiri tilkynningar um svipuð atvik ekki borist enn sem komið er.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×