Innlent

Réðust þrír gegn einum

Ráðist var á ungling á sautjánda aldursári í Sandgerði í fyrrinótt með þeim afleiðingum að tönn brotnaði. Voru að verki þrír aðilar sem lögreglan í Keflavík kannaðist við og hefur þegar yfirheyrt. Hringdi unglingurinn sjálfur eftir lögreglu að árás lokinni og var komið undir læknishendur en ekki lá fyrir hvers vegna mennirnir réðust að honum. Var hann gestur á menningarhátíð í bænum þegar að honum var veist en málið telst upplýst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×