Innlent

Allir lausir úr varðhaldi

Þeir sex aðilar sem lögreglan í Keflavík handtók aðfarararnótt laugardagsins vegna líkamsárásar fyrir utan skemmtistaðinn Traffic hafa allir verið látnir lausir en formlegri rannsókn er þó ekki lokið. Lentu sexmenningarnir í átökum við hóp varnarliðsmanna með þeim afleiðingum að slegið var til eins þeirra með brotinni bjórflösku. Hlaut sá nokkur skurðsár en engin alvarleg og voru fimm Íslendingar og einn erlendur ríkisborgari handteknir í kjölfarið. Eru þeir nú allir lausir úr varðhaldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×